Búbblur, bylgjur og frábær stemning á sumargleði FKA-DK!
Rétt fyrir sumarfrí komu FKA-DK konur saman á einum vinsælasta viðburði félagsins, Sumargleðinni,sem að þessu sinni bar heitið Búbblur & Bylgjur.
Veðurguðirnir voru heldur betur á okkar bandi og í sannkallaðri bongóblíðu sigldi stútfullur bátur af glöðum konum um síki Kaupmannahafnar.
Hin frábæra Ásta Stefánsdóttir var fararstjóri og miðlaði af sinni einstöku snilld, skemmtilegum og fróðlegum sögum úr borginni á meðan siglingunni stóð.
Söngur, hlátur og góðar veitingar settu svip sinn á siglinguna, en Tommi’s Burger Joint sá til þess að engin færi svöng frá borði og kaldar búbblur pössuðu upp á vökvabúskapinn í hitanum.
Að siglingu lokinni lá leiðin í Kongens Have þar sem gleðin hélt áfram með leikjum, spjalli og tengslamyndun. Félagið okkar fer stækkandi með hverjum viðburðinum og þótti okkur sérlega vænt um að sjá ný andlit í hópnum. Það er einstakt að sjá ný vinabönd myndast, tengslanetið blómstra og konur úr ólíkum geirum koma saman og deila reynslu, hugmyndum og góðum stundum.
Innilegar þakkir til allra sem mættu og lögðu sitt af mörkum til gera viðburðinn svona frábæran og gera FKA-DK að því lifandi og kraftmikla félagi sem það er!
Fram undan hjá FKA-DK – Taktu dagana frá!
17. september – Heimsókn í Mondo Kaos: við byrjum haustið með konum, kaos og kampavíni, þegar við heimsækjum Mondo Kaos og kynnumst rekstri og sögu þessarar einstöku verslunar.
24. október – Ráðstefna FKA-DK: Kaflaskil – Hugrekki til vaxtar: Hápunktur ársins! (Þessi dagur verður trylltur það er alveg á hreinu!) Dagur fullur af innblæstri, frábærum konum og spennandi samtölum. Þetta verður eitthvað sem þú vilt ekki missa af!
Miðasala á báða viðburði er í fullum gangi og gengur vonum framar. Tryggðu þér miða tímanlega til að missa ekki af þessum hápunktum haustsins!