Skráðu þig í fka-dk

Eitt af aðalmarkmiðum Félags kvenna í atvinnulífinu í Danmörku er að efla tengsl og sýnileika kvenna. Allir viðburðir félagsins eru opnir og ekki er skilyrði að vera skráð félagskona til þess að taka þátt.

Skráning í félagið er valkvæð, án skuldbindinga og engin félagsgjöld eru innheimt. Skráning í félagið er samtímis skráning á póstlista FKA-DK. 

Félagaskrá FKA-DK gefur stjórn félagsins yfirsýn yfir þær konur sem taka þátt og gerir okkur kleift að tengja saman konur og svara fyrirspurnum sem okkur berast reglulega, þar sem leitað er eftir konum með ákveðna reynslu og/eða menntun.

Við biðjum þig vinsamlegast að láta okkur vita ef upplýsingar sem þú skráir breytast.