Nýsköpun & nýir skór: Glæsileg heimsókn FKA-DK til JBT Marel
FKA-DK konum var boðið í heimsókn til JBT Marel þann 30. apríl síðastliðinn. Viðburðurinn fór fram í bongóblíðu og var umgjörðin glæsileg. Fjölbreyttur hópur kvenna mætti til leiks og það var sérstaklega gleðilegt að sjá mörg ný andlit í hópnum. Það er ákaflega mikilvægt að hlúa að tengslanetinu þegar maður starfar fjarri heimalandinu og þar með er samfélagið okkar og stuðningur þess enn mikilvægari.
Innsýn í ólíka viðskiptaheima
Erla Hendriksdóttir, annar stofnenda JoDis Shoes, sagði frá áhugaverðri vegferð fjölskyldu fyrirtækisins og framleiðslunni í Portúgal. Hún lýsti því hvernig þau hafa markað sér sess með skapandi samstarfi við ólíkar konur og hvernig hversdagurinn einkennist af því að bera marga hatta í senn. Þar er nefnilega á ferðinni lítið teymi, en þau láta það ekki stöðva sig í að láta hlutina gerast. Í gegnum fyrirtækið hafa farið ófáar skótýpur og var sérstaklega gaman að fá innsýn í ferlið frá a til ö. Gestir fengu svo að máta nýjustu línuna og bættu margar hverjar fallegum skóm í safnið sitt á staðnum.
Helena Guðrún Bjarnadóttir, Director Marketing, Events and Demo Centers hjá JBT Marel, tók síðan við keflinu. Hún sýndi gestum sýningarsalinn og fræddi okkur um starfsemi þessa öfluga fyrirtækis. Eftir að hafa gætt okkur á stórkostlegum veitingum hélt Helena erindi um eitt stærsta verkefni síðustu missera: sameiningu JBT og Marel frá sjónarhorni markaðsmála. Hún gaf okkur einstaka sýn í ferlið að baki hinu nýja vörumerki og hvernig tvær ólíkar fyrirtækjamenningar eru sameinaðar í eina sterka heild – þar sem 1 + 1 verður sannarlega 3. Breytingastjórnun af þessari stærðargráðu er flókið ferli og var lærdómsríkt að sjá hve vel hefur tekist til.
Sérstaklega var gaman að sjá hversu líflegar og skemmtilegar samræður spunnust úr spurningum gesta, sem gerði kvöldið enn meira fræðandi fyrir okkur allar.
Tengslanet sem skiptir máli
Eftir formlega dagskrá gafst góður tími til að spjalla og efla tengslin, en það er enginn skortur á krafti og áhuga í félaginu okkar. Gestir voru kvaddir með glæsilegum gjafapoka sem innihélt meðal annars veglegt gjafakort frá JoDis Shoes.
Við viljum færa JBT Marel okkar bestu þakkir fyrir að opna dyr sínar fyrir okkur og höfðinglegar móttökur. Sömuleiðis þökkum við Helenu og Erlu kærlega fyrir þeirra frábæru innlegg.
Konur eru konum bestar og þetta kvöld var enn ein staðfestingin á því hversu dýrmætur þessi félagsskapur, Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku, er.
Næst á dagskrá: Sumargleðin!
Við hlökkum strax til að sjá ykkur aftur, en næsti stóri viðburður er Sumargleði FKA-DK þann 25. júní. Miðasalan fer af stað á næstu dögum og hvetjum við ykkur til að vera snöggar til, enda hafa miðarnir rokið út undanfarin ár.
Takk fyrir dásamlegt kvöld og sjáumst hressar í júní!