Back to All Events

Heimsókn til Mondo Kaos

  • 31 Frederiksborggade København, 1360 Denmark (map)

Kaos, konur og kampavín - haustið hefst með Mondo Kaos ✨
Þá er komið að fyrsta viðburði FKA-DK eftir sumarfrí og við ætlum að byrja haustið með smá glamúr og góðum félagsskap.

Margar ykkar kannast eflaust við retro verslunina Mondo Kaos á Frederiksborggade og fimmtudaginn 17. september næstkomandi verður félagskonum boðið í heimsókn. Þú nælir þér í miða hérna

Hrafnhildur Halldórsdóttir, verslunarstjóri Mondo Kaos mun taka á móti okkur, kynna búðina, hugmyndina á bak við hana og það sem hún stendur fyrir. Með Hrafnhildi verða Ditte Charité Lindemose, eigandi Mondo Kaos, og Harpa Hreinsdóttir, sem kom til liðs við fyrirtækið fyrr á árinu.

Mondo Kaos er vintage reproduction og multibrand verslun, með fjölbreytt úrval af fallegum vörum og er auk þess með eigið merki, Daisy Dapper. Þetta er því kjörið tækifæri til að kíkja bak við tjöldin, kynnast konunum á bak við reksturinn og auðvitað skoða úrvalið.

Boðið verður upp á freyðivín á meðan við njótum samverunnar.
Mondo Kaos býður okkur einnig upp á 25% afslátt á meðan viðburðinum stendur🙌

📅 17. september
⏰ Kl. 17–19
📍 Mondo Kaos – Frederiksborggade 31, 1360 København K
🎟️ Miðasalan fer fram hér

Við hlökkum til að sjá ykkur! 💃✨

Previous
Previous
June 25

Sumargleði 2026: Búbblur & Bylgjur

Next
Next
October 24

Kaflaskil - hugrekki til vaxtar