Kaflaskil
hugrekki til vaxtar

FKA-DK Ráðstefna 2026


Ertu tilbúin í dag
fullan af innblæstri, tengslamyndun og
nýrri orku?

Lífið mótast á tímum breytinga. Kaflaskilum sem kalla á hugrekki, að staldra við, endurmeta og velja nýja leið. FKA-DK býður þér á þriðju ráðstefnu félagsins í Danmörku þann 24. október næstkomandi. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni fangar einmitt þessi tímamót. Við horfum inn á við og út á við, að þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir og hvað það raunverulega þýðir að stíga út fyrir þægindarammann - að sleppa taki á því örugga og treysta á eigin styrk.

Ýmsar upplýsingar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Glæsilegur hópur fyrirlesara

Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir

Katrín Jakobsdóttir

Katrín
Jakobsdóttir

Ragnhildur Þórðardóttir

ragnhildur
Þórðardóttir

Steinunn Sara Helgudóttir

Steinunn Sara
Helgudóttir

Við erum ótrúlega stoltar af því að kynna framúrskarandi konurnar sem munu stíga á stokk og deila reynslu sinni. Til að fullkomna stemninguna mun hin hæfileikaríka leik- og söngkona Jana María Guðmundsdóttir gleðja okkur og flytja söng á milli dagskrárliða.

Jana María
Guðmundsdóttir


Hvað er innifalið í miðanum?

Gullið tækifæri til að fyllast innblæstri og jákvæðri orku

  • Vandaðir fyrirlestrar og pallborðsumræður

  • Hádegismatur, kaffiveitingar og kvöldverður

  • Einstakt tækifæri til þess að efla tengslanetið í fullum sal af frábærum konum

  • Frábær stemning og innblástur frá morgni til kvölds


mIÐASALA OG VERÐ

Miðaverð er 790 DKK. Dagskrá byrjar kl. 9:30 og lýkur formlegri dagskrá kl. 21:00 Miðasalan fer fram á Billetto. Takmarkaður sætafjöldi – ekki missa af þessum einstaka degi þar sem við fyllum salinn af magnaðri kvenorku!

Aðalstyrktaraðili ráðstefnunnar er Icelandair og færum við þeim bestu þakkir fyrir samstarfið.

Hlökkum til þess að sjá þig

〰️

Hlökkum til þess að sjá þig 〰️


Fyrri ráðstefnur

Annað hvert ár heldur Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku, FKA-DK, ráðstefnu í kringum Kvennafrídaginn, 24. október. Ráðstefnan er einn mikilvægasti liðurinn í starfi félagsins – viðburður þar sem við leggjum ríka áherslu á að veita innblástur og efla tengslamyndun íslenskra kvenna í atvinnulífinu, bæði í Danmörku og á Íslandi.

Þetta er í þriðja sinn sem ráðstefna FKA-DK er haldin á Nordatlantens brygge í Kaupmannahöfn. Á síðustu ráðstefnu, þar sem færri komust að en vildu, var stemningin slík að gestir sögðu að það hefði þurft að „tappa orkuna á flöskur“. Í ár eru væntingarnar ekki minni og við erum að springa úr tilhlökkun!

2024: Ráðstefnan Forystukonur - seigla og sigrar

FKA-DK hélt ráðstefnu á Norðurbryggju þar sem Fida Abu Libdeh, Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, Gerður Arinbjarnar og Guðný Lára Árnadóttir héldu erindi. Laufey Karítas Einarsdóttir bauð upp á stutta hugleiðslu og K.óla (Katrín Helga Ólafsdóttir) var með örtónleika.

2022: Fyrirmyndir & flottar konur

FKA-DK hélt ráðstefnu á Norðurbryggju þar sem Una Emilsdóttir, Inga Tinna Sigurðardóttir, Edda Hermannsdóttir, Hildur Kristín Stefánsdóttir og Sigga Soffía Níelsdóttir héldu frábær erindi.


Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku (FKA-DK) er öflugt samfélag íslenskra kvenna sem vilja vaxa, tengjast og hafa gaman saman.

Við erum fjölbreyttur hópur, á öllum aldri sem stendur saman og styður og hvetur hvor aðra. Í FKA-DK færð þú rými til að stíga út fyrir þægindarammann þar sem virðing, lærdómur og gleði eru í fyrirrúmi.

Allir viðburðir félagsins eru opnir og þú þarft ekki að vera skráður meðlimur. Við innheimtum heldur ekki félagsgjöld. Við tökum glaðar á móti nýjum konum og þá gildir einu hvort þú mætir ein eða með vinkonu. Vertu hjartanlega velkomin.

Hlökkum til að sjá þig

〰️

Hlökkum til að sjá þig 〰️