Fyrsta umferð Mentorverkefnis FKA-DK að baki

Mentorverkefni FKA-DK fagnaði fyrstu lotu verkefnisins með lokahittingi þann 18. ágúst síðastliðinn.

Mentorverkefni FKA-DK er sex mánaða verkefni þar sem reyndar íslenskar konur í dönsku atvinnulífi leiðbeina öðrum íslenskum konum sem vilja þróa sig faglega, auka tengslanet sitt og fá innsýn í reynslu annarra. Markmið verkefnisins er að skapa tengsl milli kvenna á ólíkum starfsferilsstigum, miðla reynslu og styrkja íslenskar konur í dönsku atvinnulífi.

Mentorprogramið parar saman mentora og mentees sem hittast reglulega, og deila reynslu sinni. Alls tóku 14 mentorar og 16 mentees þátt í verkefninu og hittust pörin reglulega frá janúar til júní.

Stemningin á lokaviðburði verkefnisins var góð og sköpuðst líflegar umræður. Endurgjöf á verkefnið var frábær og ein mentee fékk meira að segja draumastarfið eftir samtölin við sinn mentor! Ein þátttakandi hafði orð á því að: „Þetta er kjarninn í alvöru tengslaneti."

Við þökkum öllum þátttakendum kærlega fyrir þátttökuna og hlökkum til að endurtaka leikinn. Mentorverkefnið verður haldið annað hvert ár frá janúar til júní, svo fylgist með á miðlum FKA-DK til að missa ekki af næstu lotu sem hefst í janúar 2028.


Next
Next

Búbblur, bylgjur og frábær stemning á sumargleði FKA-DK!