Ráðstefna FKA-DK 2026

*

Ráðstefna FKA-DK 2026 *

Ráðstefna 2026
Kaflaskil
Hugrekki til vaxtar

Ertu tilbúin í dag fullan af innblæstri, tengslamyndun og nýrri orku?

Annað hvert ár heldur Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku, FKA-DK, ráðstefnu í kringum Kvennafrídaginn, 24. október. Ráðstefnan er einn mikilvægasti liðurinn í starfi félagsins – viðburður þar sem við leggjum ríka áherslu á að veita innblástur og efla tengslamyndun íslenskra kvenna í atvinnulífinu, bæði í Danmörku og á Íslandi.

Þetta er í þriðja sinn sem ráðstefna FKA-DK er haldin á Nordatlantens brygge í Kaupmannahöfn. Á síðustu ráðstefnu, þar sem færri komust að en vildu, var stemningin slík að gestir sögðu að það hefði þurft að „tappa orkuna á flöskur“. Í ár eru væntingarnar ekki minni og við erum að springa úr tilhlökkun!

Aðalstyrktaraðili ráðstefnunnar er Icelandair og færum við þeim bestu þakkir fyrir samstarfið.

Fyrri ráðstefnur

2024: Ráðstefnan Forystukonur - seigla og sigrar

FKA-DK hélt ráðstefnu á Norðurbryggju þar sem Fida Abu Libdeh, Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, Gerður Arinbjarnar og Guðný Lára Árnadóttir héldu erindi. Laufey Karítas Einarsdóttir bauð upp á stutta hugleiðslu og K.óla (Katrín Helga Ólafsdóttir) var með örtónleika.

2022: Fyrirmyndir & flottar konur

FKA-DK hélt ráðstefnu á Norðurbryggju þar sem Una Emilsdóttir, Inga Tinna Sigurðardóttir, Edda Hermannsdóttir, Hildur Kristín Stefánsdóttir og Sigga Soffía Níelsdóttir héldu frábær erindi.

Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku (FKA-DK) er öflugt samfélag íslenskra kvenna sem vilja vaxa, tengjast og hafa gaman saman.

Við erum fjölbreyttur hópur, á öllum aldri sem stendur saman og styður og hvetur hvor aðra. Í FKA-DK færð þú rými til að stíga út fyrir þægindarammann þar sem virðing, lærdómur og gleði eru í fyrirrúmi.

Allir viðburðir félagsins eru opnir og þú þarft ekki að vera skráður meðlimur. Við innheimtum heldur ekki félagsgjöld. Við tökum glaðar á móti nýjum konum og þá gildir einu hvort þú mætir ein eða með vinkonu.

Vertu hjartanlega velkomin á viðburði félagsins.