Pandora bauð félagskonum FKA-DK og Kötlu Nordic í heimsókn
Í vikunni sem leið bauð Pandora, stærsta skartgripfyrirtæki heims, félagskonum í FKA-DK og Kötlu Nordic í heimsókn í höfuðstöðvar sínar í Kaupmannahöfn. Þar tóku á móti okkur þær Guðný Lára Árnadóttir (Global PR Event & Activation), Guðrún Jóna Jónsdóttir (Director Engineering) og Guðrún Reynisdóttir (Manager, Product Management) sem kynntu starfsemi fyrirtækisins, helstu áherslur og verkefni.
Fróðlegt var að heyra um ólíkan bakgrunn þeirra og hvernig mismunandi leiðir hafa leitt þær til skartgriparisans. Guðný Lára, Guðrún Jóna og Guðrún sýndu okkur hvernig ólík svið innan fyrirtækisins vinna saman til að tryggja gæði framleiðsluferlisins og þjónustu við viðskiptavini um allan heim. Allt frá hönnun og vöruþróun, vöruflutningum og markaðsstarfi við þekkta áhrifavalda - eins og Pamelu Anderson.
Þá var mjög áhugavert að heyra hvernig fyrirtækið vinnur statt og stöðugt að aukinni sjálfbærni en Pandora er í öðru sæti á meðal sjálfbærustu fyrirtækja heimsins, samkvæmt nýrri skýrslu Corporate Knights.
Í heimsókninni var lögð sérstök áhersla á stöðu kvenna innan Pandora. Fyrirtækið vinnur markvisst að auknu jafnvægi í leiðtogastöðum en í dag eru konur í 35% leiðtogahlutverka, samanborið við um 20% að meðaltali í öðrum alþjóðafyrirtækjum í Danmörku. Markmið Pandora er 50/50 hlutfall árið 2030. Forstjóri Pandora er Berta de Pablos-Barbier, sem tók við starfinu í byrjun árs. Vert er að nefna að innan við 10% af forstjórum 100 stærstu fyrirtækja í Danmörku eru konur.
Að kynningu lokinni var boðið upp á glæsilegar veitingar þar sem konur gátu spjallað, eflt tengslanetið og notið samverunnar á köldum en fallegum vetrardegi í kóngsins Kaupmannahöfn.
Við þökkum Pandora kærlega fyrir höfðinglegar móttökur!
Heimsóknir sem þessar skipta gríðarlega miklu máli fyrir okkur í FKA-DK. Að fá að skyggnast inn í starfsemi stórra alþjóðafyrirtækja og hitta konur sem gegna lykilhlutverkum innan þeirra styrkir ekki bara þekkingu okkar heldur líka tengslanetið, sem er ómetanlegt þegar maður býr fjarri heimahögum.