Mentorverkefni FKA-DK formlega komið af stað
Þriðjudaginn 13. janúar hélt Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku (FKA-DK) fyrsta viðburð ársins og um leið fyrsta viðburð nýs Mentorverkefnis félagsins. Verkefnið markar mikilvægan áfanga í starfi FKA-DK og hafa móttökurnar verið afar jákvæðar.
Mentorverkefnið var kynnt á kvennafrídaginn, 24. október 2025 í íslenska sendiráðsbústaðnum, þegar Hvatningarverðlaun félagsins voru afhent. Í kjölfarið var opnað fyrir umsóknir fram til loka nóvember. Markmið verkefnisins er að skapa tengsl milli kvenna á ólíkum stigum á starfsferlinum, miðla reynslu og styrkja íslenskar konur í dönsku atvinnulífi.
Mentorar og mentees í Mentorverkefni FKA-DK 2026. Á myndina vantar nokkrar sem ekki höfðu tök á því að mæta á viðburðinn.
Þátttakendur í verkefninu eru 31, 14 mentorar sem paraðar voru saman við 17 mentees. Hópurinn er samansettur af konum á ólíkum stigum á starfsferlinum sem koma úr fjölbreyttum geirum, en eiga það sameiginlegt að vilja miðla og læra. Mentorarnir eru öflugar íslenskar konur með mikla reynslu sem gegna lykilhlutverkum í dönsku atvinnulífi.
Kick-off viðburður Mentorverkefnisins fór fram í Jónshúsi og markaði formlega upphaf verkefnisins. Stemningin var frábær og góð orka í salnum þegar mentorar og mentees komu saman í fyrsta sinn og tóku fyrstu skrefin í samstarfinu. Verkefninu lýkur í júní.
Laufey Kristín Skúladóttir, hugmyndasmiður og verkefnastjóri Mentorverkefnis FKA-DK, bauð gesti velkomna og sagði frá tilurð verkefnisins og þeirri þörf sem það svarar.
Laufey Kristín Skúladóttir, hugmyndasmiður og verkefnastjóri Mentorverkefnis FKA-DK, bauð gesti velkomna og sagði frá tilurð verkefnisins og þeirri þörf sem það svarar.
„Við í FKA-DK erum afskaplega stoltar af þessu nýja verkefni sem hefur fengið frábærar viðtökur. Við erum mjög þakklátar öllum þeim konum sem hafa sýnt verkefninu áhuga, vilja taka þátt og leggja sitt af mörkum.
Með mentorverkefninu viljum við gera íslenskar konur í Danmörku enn sýnilegri, styrkja tengslanet þeirra og skapa vettvang þar sem reynsla og þekking flæðir á milli einstaklinga, kynslóða og starfsgreina. Reynslan sýnir okkur að formleg mentorverkefni skila árangri og við vitum að fyrirmyndir skipta máli. Þegar konur lyfta hvor annarri, eflist bæði sjálfstraust og faglegur kraftur. Með þessu verkefni viljum við styrkja samfélagið okkar og efla FKA‑DK sem lifandi hreyfiafl fyrir íslenskar konur í Danmörku.“Laufey Kristín Skúladóttir, hugmyndasmiður og verkefnastjóri Mentorverkefnis FKA-DK
Halla Benediktsdóttir, umsjónarmaður Jónshúss, tók næst til máls. Halla er verndari verkefnisins og þekkir félagið vel, en hún var meðal stofnenda FKA-DK og gegndi formennsku í 10 ár. Í máli sínu lagði hún sérstaka áherslu á mikilvægi samfélags í síbreytilegu umhverfi, þar sem íslenskar konur búsettar erlendis koma og fara, aðstæður breytast og enn ríkari þörf er fyrir sterkt tengslanet, stuðning og traust. Hún lýsti hlutverki verndara sem bæði táknrænu og mikilvægu, þar sem það styrkir stöðu verkefnisins og eykur trúverðugleika þess og sýnileika.
Halla hvatti konurnar í salnum til að treysta eigin hugmyndum og láta vaða:
“Ef þið gangið með hugmynd eða brennið fyrir einhverju, látið vaða.
Það er ólýsanlegt að sjá lítið fræ verða að veruleika, blómstra og skynja að maður geti haft áhrif!”
Halla Benediktsdóttir, verndari Mentorverkefnis FKA-DK
Því næst stigu á svið Helga Björk Magnúsdóttir, Director Systems & Technology hjá R&D deild GN Hearing, og Guðrún Jóna Jónsdóttir, Director yfir Engineering, Data and Analytics hjá Pandora. Þær deildu báðar reynslu sinni af mentorhlutverkinu og ræddu mikilvægi gagnkvæms trausts, opinna og heiðarlegra samskipta og skýrra markmiða í mentor–mentee sambandi. Báðar hafa þær reynslu af því að vera bæði mentor og mentee og gátu því miðlað hagnýtum ráðleggingum úr raunverulegum aðstæðum og hvatt viðstadda til þess að nýta tækifærið til fulls.
Að lokum gafst tími til að njóta veitinga, spjalla saman og mentorar og mentees fengu tækifæri til að kynnast betur og taka fyrstu skrefin í samstarfinu. Mentorverkefnið stendur fram á sumar og lýkur með lokaviðburði í júní.