Haustönn FKA-DK 2026 hófst með viðburðinum Kaos, konur og kampavín, þar sem félagskonur heimsóttu Mondo Kaos og áttu saman góða stund í notalegu umhverfi.
Hrafnhildur, verslunarstjóri, Harpa, starfskona verslunarinnar, og Ditte, eigandi Mondo Kaos, tóku á móti hópnum og sögðu frá sögu fyrirtækisins hugmyndafræðinni á bak við verslunina og því hvernig starfseming hefur þróast í gegnum árin, en verslunin fagnar 20 ára afmæli á næstunni. Það var bæði áhugavert og fræðandi að fá innsýn í ferðalagið og heyra hvernig áhersla á gæði, fagmennsku og einstaka upplifun viðskiptavina hefur mótað starfsemina.
Það var auðvelt að finna þann hlýja og jákvæða anda sem einkennir Mondo Kaos. Í versluninni er lögð rík áhersla á að skapa afslappað og huggulegt andrúmsloft þar sem öllum líður vel, og sú hugsun endurspeglaðist svo sannarlega í stemningunni sem myndaðist á viðburðinum.
Konur hvetja aðrar konur var sannarlega þema kvöldsins og gaman að heyra konur hvetja og tala hvora aðra upp. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá ný andlit á meðal gesta og bjóðum við þær hjartanlega velkomnar í samfélag FKA-DK.
Við þökkum Mondo Kaos kærlega fyrir hlýjar móttökur og skemmtilegan viðburð.
Með þessum viðburði er haustönn FKA-DK formlega hafin og fram undan eru fjölbreyttir og spennandi viðburðir. Um leið er niðurtalningin í ráðstefnu FKA-DK 2026 hafin og við hlökkum til að taka á móti þátttakendum síðar á árinu. Miðum fer ört fækkandi og við hvetjum allar sem hafa verið að velta miðakaupum fyrir sér að slá til svo þær grípi ekki í tómt. Það styttist í það verði uppselt.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá viðburðinum hjá Mondo Kaos.