Fyrirlesarar á ráðstefnu FKA-DK 24. október 2026. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ragnhildur Þórðardóttir, Katrín Jakobsdóttir, Steinunn Sara Helgudóttir.
Þriðja ráðstefna Félags kvenna í atvinnulífinu í Danmörku (FKA-DK) fór fram á kvennafrídaginn 24. október, á Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn. Alls komu 150 íslenskar konur saman undir yfirskriftinni Kaflaskil – hugrekki til vaxtar, til að sækja sér innblástur, miðla reynslu og styrkja tengsl. Ráðstefnan var sú fjölmennasta frá upphafi en uppselt var á viðburðinn.
Á ráðstefnunni var sjónum beint að hugrekkinu sem þarf til að takast á við breytingar, feta nýjar slóðir og grípa tækifærin þegar þau gefast, bæði í starfi og einkalífi. Dagskráin endurspeglaði fjölbreyttar leiðir kvenna til árangurs og mikilvægi þess að þora að stíga út fyrir þægindarammann.
„Það er ótrúlega ánægjulegt að sjá hvernig þessi vettvangur hefur vaxið og viðburður af þessu tagi sýnir svo ekki verður um villst að konur vilja sækja sér innblástur, hvetja og styrkja hverja aðra og hafa svolítið gaman í leiðinni. Það er einmitt það sem við viljum byggja upp með FKA-DK – samfélag þar sem konur styðja hverja aðra, deila þekkingu og opna dyr að nýjum tækifærum,“ segir Jórunn Einarsdóttir, formaður FKA-DK.
Hugrekki til að breyta, vaxa og fara eigin leiðir
Fjórar magnaðar konur stigu á svið og deildu reynslu sinni af leiðtogahlutverkum, nýsköpun, persónulegum áskorunum og því að skapa sér ný tækifæri.
Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ráðherra og nú Senior Director hjá Fenris Creations, miðluðu reynslu sinni af leiðtogahlutverkum og kaflaskilum á starfsferlinum.
“Það var magnað að hitta þennan öfluga og fjölmenna hóp kvenna í atvinnulífinu í Danmörku og sjá hversu fjölbreyttur hann var, bæði hvað varðar starfsvettvang, aldur og hversu lengi þær hafa verið búsettar þar. Það var heiður að fá að deila með þeim ýmsum lærdómi sem ég hef tekið frá mínum störfum og þeim kaflaskiptum sem orðið hafa á mínu lífi. Hversu gott það er að breyta um starfsvettvang, taka áhættur og prófa eitthvað nýtt.” sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir að viðburði loknum.
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, fjallaði um 22 ára vegferð við uppbyggingu eigin vörumerkis og hvernig okkar eigin hugsanir og hugarfar geta orðið stærstu hindranirnar á vegi okkar. Hún lagði áherslu á hvernig við getum unnið með þessar hindranir og breytt viðhorfi okkar.
Steinunn Sara Helgudóttir, stofnandi og vísindastjóri Neurometa Therapeutics, sagði frá vegferð sinni frá vísindarannsóknum til uppbyggingar fyrirtækis á alþjóðlegum markaði, þar sem nýsköpun, samstarf og hugrekki til að fara ótroðnar slóðir hafa gegnt lykilhlutverki.
Þótt reynsla fyrirlesaranna væri ólík var rauði þráðurinn sá sami: að breytingar geta skapað ný tækifæri og að hugrekki, seigla og trú á eigin getu skipta máli þegar nýr kafli tekur við. Fyrirlesararnir töluðu líka um mikilvægi þess að hlusta á eigin rödd og fylgja innsæinu, finna sínar eigin leiðir og mikilvægi vináttunnar og tengslanetsins þegar við stöndum á krossgötum í lífinu.
Tengsl sem lifa áfram eftir ráðstefnuna
Ráðstefnan var ekki síður mikilvægur vettvangur fyrir tengslamyndun meðal íslenskra kvenna í Danmörku og víðar, en þátttakendur komu einnig frá Íslandi, Svíþjóð og Noregi. “Við viljum að konur fari héðan ekki bara fullar innblæstri, heldur að þær hafi líka myndað ný tengsl, fengið nýjar hugmyndir og jafnvel hugrekki til að taka næsta skref. Að búa erlendis getur vissulega verið mikið ævintýri, en því fylgir líka að þurfa að byggja upp nýtt öryggisnet frá grunni. Það er því mikill styrkur fólginn í því að finna að maður er hluti af samfélagi þar sem konur hvetja hvor aðra áfram og gleðjast yfir árangri hverrar annarrar,“ segir Jórunn.
Svona ráðstefna verður til vegna góðvildar fjölda fyrirtækja og samstarfsaðila sem hafa stutt við bakið á félaginu og styrkt okkur. Við færum þeim bestu þakkir fyrir.
Hildur María Valgarðsdóttir tók myndirnar hér fyrir neðan.
Um FKA-DK
Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku (FKA-DK) er tengslanet íslenskra kvenna í Danmörku sem hefur það að markmiði að efla sýnileika, tengsl og tækifæri kvenna í atvinnulífinu.Félagið stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum, fyrirtækjaheimsóknum, fræðslu og tengslamyndun auk Hvatningaverðlauna og mentorverkefnis þar sem reynslumiklar konur miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra.