Sumargleðin okkar er loksins á næsta leiti. Þetta er án efa einn af vinsælustu viðburðum ársins hjá félaginu og því borgar sig að hafa hraðar hendur.
Dagskráin
Við hittumst fyrir framan The Standard (Havnegade 44, Kbh K) kl. 17 og byrjum kvöldið á freyðandi fjöri og siglingu um fallegu síkin í Kaupmannahöfn. Við siglum af stað kl. 17.30 og með búbblur í glasi og góða skapið í farteskinu ætlum við að njóta samverunnar og skemmta okkur undir dásamlegri veislustjórn Ástu Stefánsdóttur.
Að siglingu lokinni höldum við leiknum áfram og færum okkur yfir í Kongens Have. Þar ætlum við að njóta þess að styrkja tengslin, hlæja og eiga góða stund saman.
Gott að vita:
Mætið með ykkar eigið teppi, glas og góða skapið.
Matur og drykkir eru innifaldir í verðinu.
Við gæðum okkur á gómsætum borgurum frá Burger Joint. Pöntunarform fyrir matinn verður sent út þegar að nær dregur.
Tryggðu þér sæti strax! Þessi viðburður er hápunktur sumarsins hjá FKA-DK og við hlökkum mikið til að sjá ykkur allar í eintómri gleði og glensi.