Back to All Events

Nýsköpun & Nýir skór!

Nýsköpun & Nýir skór!

JBT Marel býður FKA‑DK konum í heimsókn 30. apríl, þar sem Erla Hendriksdóttir frá JoDis Shoes verður sérstakur gestur. Við ræðum breytingastjórnun, nýsköpun og nýja skó og höfum góðan tíma til tengslamyndunar í notalegu umhverfi.

JBT Marel – vegferðin að nýrri ímynd
JBT Marel hefur gengið í gegnum umfangsmiklar breytingar á síðustu misserum. Margar þekkja vel hvernig breytingar hafa áhrif á starfsumhverfi og teymi. Helena Guðrún Bjarnadóttir, Director Marketing, Events and Demo Centers, mun fara yfir vegferðina að nýrri ímynd fyrirtækisins.

“Sameining JBT og Marel markaði upphaf að öflugum alþjóðlegum leiðtoga í matvælatækni. Með sameiningunni kom ný stefna, sameiginleg markaðssýn og víðara hlutverk á mörgum endamörkuðum. Ný ímynd er ekki aðeins nýtt útlit – hún er endurmótun á ímynd okkar, metnaði og því hvernig við birtumst viðskiptavinum, samstarfsaðilum og fjárfestum. Hún sameinar arfleifð beggja fyrirtækja og setur nýjan tón fyrir framtíðarvöxt.”

Helena Guðrún Bjarnadóttir, Director Marketing, Events and Demo Centers hjá JBT Marel.

JoDis – íslensk hönnun, portúgalskt handverk
Erla Hendriksdóttir, annar eigenda og stofnenda JoDis Shoes, mun sýna frá hönnunarferlinu og framleiðslunni í Portúgal og því hvernig það er að reka skóhönnunarfyrirtæki. Gestir geta skoðað og mátað skó og jafnvel lagt inn pöntun. Sérstakur FKA‑DK afsláttur verður í boði þetta kvöld.

Praktískar upplýsingar
Húsið opnar kl. 17 og formleg dagskrá hefst kl. 17:30.

Við hlökkum til að sjá þig á þessum skemmtilega og fróðlega viðburði.
Tryggðu þér miða hér.

Previous
Previous
March 6

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Next
Next
June 25

Sumargleði