Ráðstefna FKA-DK 2026
Kaflaskil
Hugrekki til vaxtar
Ertu tilbúin í dag fullan af innblæstri, tengslamyndun og nýrri orku?
Annað hvert ár heldur Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku, FKA-DK, ráðstefnu í kringum Kvennafrídaginn, 24. október. Ráðstefnan er einn mikilvægasti liðurinn í starfi félagsins – viðburður þar sem við leggjum ríka áherslu á að veita innblástur og efla tengslamyndun íslenskra kvenna í atvinnulífinu, bæði í Danmörku og á Íslandi.
Þetta er í þriðja sinn sem ráðstefna FKA-DK er haldin á Nordatlantens brygge í Kaupmannahöfn. Á síðustu ráðstefnu, þar sem færri komust að en vildu, var stemningin slík að gestir sögðu að það hefði þurft að „tappa orkuna á flöskur“. Í ár eru væntingarnar ekki minni og við erum að springa úr tilhlökkun!
Kaflaskil – Hugrekki til vaxtar
Lífið mótast á tímum breytinga. Kaflaskilum sem kalla á hugrekki, að staldra við, endurmeta og velja nýja leið. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni fangar einmitt þessi tímamót. Við horfum inn á við og út á við, að þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir og hvað það raunverulega þýðir að stíga út fyrir þægindarammann - að sleppa taki á því örugga og treysta á eigin styrk.
Miðasalan hefst 24. júní.