Fyrirlesarar ráðstefnu fka-dk 2026

Ráðstefna FKA-DK 2026, Kaflaskipti - Hugrekki til vaxtar, verður dagur innblásturs, tengslamyndunar og uppbyggilegra samræðna. Við erum afar stoltar af því að kynna fjórar framúrskarandi konur sem hafa markað sér sterkan sess sem leiðtogar og frumkvöðlar á sínum sviðum og munu deila reynslu sinni, innsýn og lærdómi úr eigin vegferð. Fyrirlestrarnir munu meðal annars fjalla um leiðtogahlutverk, nýsköpun, seiglu og þau tækifæri og áskoranir sem hafa mótað feril þeirra.

Kynntu þér fyrirlesarana hér að neðan og tryggðu þér miða á ráðstefnuna.

Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður með áratuga reynslu af stjórnmálum og leiðtogastörfum. Hún var kjörin á Alþingi árið 2016 og hefur gegnt embætti dómsmálaráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Í dag starfar Áslaug Arna sem Senior Director, AI Partnership hjá Fenris Creations.

Á síðasta ári lauk hún alþjóðlegu leiðtoganámi við Columbia-háskóla í New York með meistaragráðu (MPA í Global Leadership), þar sem hún lagði sérstaka áherslu á áhrif gervigreindar, tæknibreytinga og alþjóðlegra umbreytinga á samfélög, atvinnulíf og stjórnsýslu.

Áslaug Arna varð þingmaður aðeins 25 ára og ráðherra 28 ára. Hún hefur lagt áherslu á aukna nýsköpun, stafvæðingu og einfaldara regluverk ásamt því að hvetja ungt fólk og konur til aukinna áhrifa og þátttöku.

Katrín
Jakobsdóttir

Katrín Jakobsdóttir

Katrín Jakobsdóttir var forsætisráðherra Íslands frá 2017 til 2024 og sat á Alþingi frá 2007 til 2024. Hún gegndi einnig embætti mennta- og menningarmálaráðherra og hefur víðtæka reynslu af stjórnmálum, alþjóðasamstarfi og leiðtogastörfum.

Í dag sinnir Katrín verkefnum fyrir Arctic Circle þar sem hún leiðir meðal annars verkefnið Polar Dialogue, sem stuðlar að samtali og samstarfi um málefni norðurslóða. Hún hefur jafnframt leitt samevrópska nefnd um loftslag og heilsu fyrir Evrópuskrifstofu WHO, flutt erindi og kennt víða um heim.

Katrín hefur einnig gefið út tvær glæpasögur ásamt Ragnari Jónassyni, Reykjavík og Franski spítalinn. Hún er jafnframt stjórnarformaður New Nordics AI, Listahátíðar í Reykjavík og leiðir stjórn Rannsóknaseturs um jafnrétti í atvinnu- og efnahagslífi við Háskóla Íslands.

ragnhildur
Þórðardóttir

Ragnhildur Þórðardóttir

Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, er sálfræðingur með eigin sálfræðistofu á Frederiksberg, pistlahöfundur, hlaðvarpsstjórnandi, einkaþjálfari og fyrirlesari.

Hún hefur skrifað pistla um heilsu síðan 2006 sem má finna á Facebook og Instagram og heldur úti hlaðvarpinu Heilsuvarpinu sem fjallar um allt sem viðkemur líkamlegri og andlegri heilsu.

Ragga heldur reglulega fyrirlestra og námskeið um heilsutengd málefni fyrir fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir.

Hún er þekkt fyrir skýra og áhrifaríka miðlun þar sem hún fléttar saman sálfræði, vísindum og húmor. Með hreinskilinni nálgun og líflegri framsetningu hvetur hún fólk til að efla bæði heilsu sína og sjálfstraust.

Steinunn Sara
Helgudóttir

Steinunn Sara Helgudóttir

Steinunn Sara Helgudóttir er stofnandi og vísindastjóri hjá Neurometa Therapeutics, líftæknifyrirtæki sem vinnur að þróun nýrra lyfja gegn taugahrörnunarsjúkdómum.

Hún hefur starfað á sviði lífvísinda, nýsköpunar og fyrirtækjauppbyggingar og býr yfir víðtækri reynslu af því að leiða rannsóknir frá hugmyndastigi í átt að klínískri þróun.

Sem frumkvöðull hefur Steinunn unnið að því að byggja upp alþjóðlegt fyrirtæki á samkeppnishörðum markaði þar sem vísindi, fjármögnun og stefnumótun þurfa að fara saman.

Steinunn mun deila reynslu sinni af því að leiða vísindateymi, þróa nýsköpunarfyrirtæki og skapa brú á milli rannsókna, atvinnulífs og samfélags með öflugu samstarfi og skýrri framtíðarsýn.

Jana María
Guðmundsdóttir

Til að fullkomna upplifunina mun söng- og leikkonan Jana María Guðmundsdóttir flytja tónlist á milli dagskrárliða og setja skemmtilegan svip á daginn.

Jana María Guðmundsdóttir er söng- og leikkona sem hefur komið víða við á ferli sínum sem skapandi fjöllistakona. Hún gaf út sólóplötuna Flora árið 2017 með eigin lögum og textum og hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði tónlistar og leiklistar.

Í leikhúsi hefur Jana María farið með fjölda hlutverka, meðal annars í Rocky Horror, Hárinu, Vesalingunum og Galdrakarlinum í Oz. Hún fór einnig með aðalhlutverk í bandaríska söngleiknum Time Stops eftir Brett Boles.

Jana María hefur flutt fjölbreytta tónlist, allt frá óperu og þjóðlagatónlist til djass-, rokk- og söngleikjatónlistar. Í dag kemur hún reglulega fram í Kaupmannahöfn samhliða því sem hún vinnur að nýrri sólóplötu.

Kaflaskil
hugrekki til vaxtar

FKA-DK Ráðstefna 2026


Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku (FKA-DK) er öflugt samfélag íslenskra kvenna sem vilja vaxa, tengjast og hafa gaman saman.

Við erum fjölbreyttur hópur, á öllum aldri sem stendur saman og styður og hvetur hvor aðra. Í FKA-DK færð þú rými til að stíga út fyrir þægindarammann þar sem virðing, lærdómur og gleði eru í fyrirrúmi.

Allir viðburðir félagsins eru opnir og þú þarft ekki að vera skráður meðlimur. Við innheimtum heldur ekki félagsgjöld. Við tökum glaðar á móti nýjum konum og þá gildir einu hvort þú mætir ein eða með vinkonu. Vertu hjartanlega velkomin.